Í PMO er hægt að nota lyklaborðið til að framkvæma nánast allar aðgerðir í kerfinu. Slíkt getur sparað tíma þar sem ekki þarf að hreyfa hendurnar milli músarinnar og lyklaborðsins með endurteknum hætti þegar verið er að vinna.
Þessar leiðbeiningar fara yfir helstu flýtilykla sem eru í boði í kerfinu. Þetta er ekki tæmandi yfirlit yfir alla flýtilykla. Jafnframt er hægt að búa til eigin flýtilykla í kerfinu eða breyta hvaða flýtilyklar framkvæma hvaða aðgerðir. Leiðbeiningar þessar miða við þá flýtilykla sem eru sjálfgefnir í kerfinu.
Aðgerð | Flýtilyklar |
Leita að sjúkling/Opna sjúkraskrá | Ctrl+H |
Ný nóta | F9 |
Ný sjúkdómsgreining | F8 |
Nýtt skjal | F10 |
Loka núverandi flipa/glugga | Esc |
Ný Tímabókun | Alt+Ctrl+T |
Loka Sjúkraskrá/Sjúkling | Ctrl+Q |
Uppfæra gögn/Sækja nýjustu útgáfu | F5 |
Vista skráningu | Alt+V |
Nótur
Í nótu-einingunni eru sérstakir flýtitakkar í boði sem auðvelda skráningu
Aðgerð | Flýtilyklar |
Færa bendil í næsta kafla | ↓ (píla niður) |
Færa bendil í kaflan á undan | ↑ (píla upp) |
Ný lína innan kafla | Shift+Enter |
Opna fellilista | Ctrl+Space |