1. Home
  2. PMO fyrir byrjendur
  3. Leiðbeiningar fyrir rafræn læknabréf í PMO
  1. Home
  2. PMO Leiðbeingar
  3. Leiðbeiningar fyrir rafræn læknabréf í PMO

Leiðbeiningar fyrir rafræn læknabréf í PMO

Hvernig virka rafræn læknabréf?

Rafræn læknabréf eru send rafrænt í gegnum rafræna samskiptagátt Landlæknis. PMO tengist þessari
gátt í gegnum alhliða rafrænan samskiptaþjón sem kallast Bifröst. Allt þetta fer fram á bak við tjöldin
svo notandinn þarf einungis að hugsa um að skrifa efni skeytisins og velja réttan aðila til að senda á.

Hvernig á að skoða rafræn læknabréf í PMO?

Rafræn læknabréf eru meðhöndluð á sama hátt og önnur skjöl í PMO. Þau eru aðgengileg í Sjúkraskrá
sjúklings í undirflokknum Skjöl.

Það eru tvær leiðir til að nálgast skjöl í PMO.

Leið 1
Í gegnum Yfirlitsmyndina. Þar er nóg að smella á Skjöl til þess að opna Skjalagluggann.

Leið 2
Einnig er hægt að opna Sjúkraskrá sjúklings í valmyndinni til vinstri og tvísmella á Skjöl.

Hér birtast rafræn skeyti undir Rafræn samskipti

Hvernig á að senda rafræn læknabréf í PMO

Það tekur fimm skref að senda rafræn skilaboð úr PMO. Fyrst þarf að stofna skjalið og velja tegund þess. Því næst er viðtakandi valinn. Að því loknu er innihald bréfsins skrifað, hakað í Senda og skjalið að lokum vistað. Við það að haka í Senda sendist skjalið sjálfkrafa um leið og það er vistað.

1. Búa til nýtt skjal

Hægt er að fara þrjár leiðir til að búa til nýtt skjal í PMO. Allar þessar þrjár leiðir opna sama gluggan í PMO.

Stysta leiðin er að smella á Nýtt skjal á tækjastikunni efst í PMO.

Önnur leið er að fara inn í sjúkraskrá sjúklings opna Skjöl og smella á Nýtt efst í glugganum vinstra megin og velja Skjal.

Þriðja leiðin er að hægrismella á Skjöl í Sjúkraskrá sjúklings og velja Nýtt.

2. Velja tegund skjals

Þegar nýtt skjal er stofnað í PMO opnast þessi valmynd fyrir tegund skjals.

Hér þarf að smella á plúsinn við flokkinn Rafræn samskipti, velja Rafrænt Læknabréf og smella á Í lagi.

3. Velja heimilisfang móttakandi stofnunar

Heimilisfanga listinn opnast sjálfkrafa. Allir aðilar sem geta tekið á móti Rafrænum læknabréfum eru geymdir í Kerfis hópnum Rafræn Læknabréf #186 í Heimilisfanga hópa glugganum.

Í þessu tilfelli er verið að senda Rafrænt læknabréf á stofnunina Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri (FSA) og deild Almennar Barnalækningar. Eftir að viðeigandi heimilisfang hefur verið valið er smellt á Í lagi.

4. Skrifa innihalds bréfsins

Því næst er að filla út eyðublað fyrir Rafrænt læknabréf. Í Efni bréfs reitinn er efni bréfsins skrifað. Í Sjúkdómsgreiningingar hlutan er hægt að velja greiningar sem búið er að gera á sjúklingi í PMO. Einnig er hægt að skrifa athugasemd sem fylgir með greiningunni. Hægt er að senda allt að 6 greiningar í hverju rafrænu læknabréfi. Greiningarnar eru valkvæmar svo einnig er leyfilegt að skilja þær eftir auðar.

5. Senda bréfið

Þegar bréfið er tilbúið þarf að senda það rafrænt. Það er gert með því að haka í Senda og smella á Vista efst í glugganum. Þá er bréfið sent rafrænt um leið.

MIKILVÆGT ER AÐ HAFA Í HUGA AÐ SKJALIÐ ER EKKI SENT RAFRÆNT NEMA HAKAÐ SÉ Í SENDA!

Svo það má alls ekki gleyma að haka í Senda.

Eftir að bréfið er sent birtist það á sama stað og önnur skjöl í PMO.


Þar er hægt að skoða hvort rafræna bréfið hafi ekki örugglega verið sent með því að tvísmella á það í Skjalalistanum.

Tilkynningar

Tvennskonar tilkynningar berast notendum í PMO vegna Rafrænna læknabréfa. Annars vegar tilkynningar um villur við sendingu Rafrænna Læknabréfa og hins vegar tilkynningar um móttöku Rafrænna læknabréfa. Báðar þessar tegundir tilkynninga birtast á sama stað í PMO.

Tilkynning um villu í sendingu

Hafi eitthvað misfarist við sendingu Rafræns Læknabréfs fær sendandinn tilkynningu frá Bifröst Samskiptaþjóni með villuskilaboðum tengdum bréfinu sem hann sendi. Berist slík villuskilaboð hefur Rafræna læknabréfið EKKI skilað sér til viðtakanda. Ástæður þess geta verið ýmsar. Allt frá kerfisbilun á leiðinni yfir í það að viðtakandi hafni skilaboðum meðvitað.

Tilkynning um villu í sendingu

Þegar Rafrænt Læknabréf berst frá utanað komandi stofnun og það hefur verið flokkað fær móttakandi tilkynningu um það í PMO frá Bifröst Samskiptaþjóni.

Hvar birtast tilkynningar í PMO

Þegar notandi á óskoðaðar tilkynningar í PMO birtist lítið umslag uppi í hægra horninu í Mín vinna.

Þegar smellt er á umslagið er hægt að skoða ólesnar tilkynningar.

Hér birtast hvoru tveggja tilkynningar um villuskilaboð við sendingu Rafrænna Læknabréfa sem og tilkynningar um móttöku Rafrænna Læknabréfa ásamt öðrum skilaboðum innanhúss. Á myndinni hér að ofan eru þrjár ólesnar tilkinnyngar um villu í sendingu Rafrænna læknabréfa. Í þessu tilfelli hefur móttöku stofnun hafnað Rafræna Læknabréfinu vegna þess að kennitala einstaklingsins finnst ekki í þjóðskrá þar sem „Joe Testpatient“ er uppspuni. Til að skoða skilaboðin nánar er hægt að tvísmella á þau.

Þessi gluggi er eins hvort sem um villuskilaboð eða tilkynningu um móttöku er að ræða. Eini munurinn er innihald textans. Neðst í glugganum má svo sjá reitinn Tengd viðhengi. Í honum birtist viðeigandi Rafrænt Læknabréf hvort sem um sent bréf eða móttekið sé að ræða. Með því að smella á Skjal í reitinum og svo á Opna hnappinn má fara beint inn í Rafræna Læknabréfið.

Updated on February 28, 2023

Was this article helpful?

Related Articles

Leave a Comment